Háskóladagurinn verður í FNV á föstudaginn
Háskóladagurinn verður í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þann 18. mars frá kl. 9:45 til 11:15. Allir háskólar landsins kynna námsleiðir sínar, sem eru yfir 500 talsins, og námsráðgjafar verða á staðnum.
„Það er ekki á hverjum degi sem allir háskólar á Íslandi fara hringinn í kringum landið til að kynna háskólanám," segir Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, verkefnastjóri Háskóladagsins um kynningu á háskólanámi í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra föstudaginn 18. mars frá kl. 9:45 til 11:15.
Allir háskólar á Íslandi standa í sameiningu fyrir Háskóladeginum sem fór fram í Reykjavík laugardaginn 5. mars frá kl. 12 til 16. Eftir þann dag héldu háskólarnir í ferð um landið til að kynna þær námsleiðir sem eru í boði.
„Háskólarnir ljúka hringferð sinni í FNV og er kynningin einstakt tækifæri fyrir þá sem ætla að hefja háskólanám næsta haust eða vilja skoða hvaða möguleikar eru í boði," segir Hallfríður og bætir við að möguleikarnir séu ótalmargir. „Ég held að margir verði hissa yfir fjölbreytileikanum sem ríkir innan veggja háskólanna. Það er eitthvað í boði fyrir alla," segir hún og bendir á að skólarnir séu alltaf að bæta við eða endurbæta námsframboðið. „Þú gætir því auðveldlega uppgötvað eitthvað nýtt nám, sem þú vissir ekki um, í FNV á föstudaginn," segir Hallfríður.
Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands kynna námsframboð sitt, á grunn- og framhaldsstigi.
Háskóladagurinn veitir framtíðarnemendum tækifæri til þess að hitta námsráðgjafa, kennara, starfsmenn og nemendur háskólanna svo þeir geti tekið upplýsta ákvörðun um námsval. „Það eru allir velkomnir og við hvetjum fólk á öllum aldri til þess að mæta, hvort sem þeir eru framhaldsskólanemar, nýstúdentar eða fólk úr atvinnulífinu," segir Hallfríður.