Hátæknimenntasetur opnað á Sauðárkróki

Síðastliðinn föstudag var fyrsta HAAS hátæknimenntasetur á Íslandi opnað við hátíðlega athöfn í Verknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki að viðstöddu fjölmenni. Vígslan hófst með ávarpi Ingileifar Oddsdóttur skólameistara sem sagði að tilkoma hátækniseturs væri lykill að framförum í nútíma iðnaði og framleiðslu þar sem skólar eigi að leiða þá þróun en ekki að fylgja í kjölfarið.

 

Geir Eyjólfsson, fagstjóri í málmiðnum sagði að margar hindranir hafi verið yfirstignar á þeirri leið að koma setrinu á og þá ekki síst að eiga við sérfræðinga sem lögðu á það áherslu að nemendur þyrftu að læra grunninn en ekki á háþróaðar og tölvustýrðar vélar. Geir sagði að á þá hafi verið hlustað í upphafi en ákveðið að halda áfram á þessari braut og setti fram dæmisögu sem sýndi af hverju. Barn fær farsíma í hendur og hringir úr honum í þann sem það langar til og hefur ekki áhyggjur af grunninum. Ef hefði átt að byrja á grunninum hefði barnið átt að fá fyrst ritsíma svo sveitasíma, hálfsjálvirkan síma o.s.frv.

Í ávarpi gesta kom fram hve mikilvægt er að hátæknimenntasetur sé komið á fót á Íslandi en í dag eru 52 skólar í Evrópu með hátæknimenntasetur og munu þeir hafa samstarf um þróun og tækniþekkingu á sviði CNC hátækni í iðnmenntun.

Í tilefni vígslunnar afhenti Marteinn Jónsson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Kaupfélags Skagfirðinga, skólanum eina miljón króna að gjöf frá Sáttmála til sóknar, en að honum standa Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfélög, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur. Þessa upphæð á að nota til að markaðssetja skólann

Að ræðuhöldum loknum var Hátæknimenntasetrið vígt þegar Alain Reynvoet, Ingileif Oddsdóttir og Hjörtur P. Jónsson klipptu á borða að HAAS rými skólans.

.

Fleiri fréttir