Hátt verð á dísilolíu og bensíni er að verða meiri háttar vandamál
Landsbyggðin lifi krefst þess að ríkisstjórnin beiti áhrifum sínum til að lækka verð á bílaeldsneyti. Til þess hafa stjórnvöld tvo augljósa kosti: 1) að stórlækka eða afnema eldsneytisskatta, 2) að gera kröfu á olíufélögin um lægri álagningu.
Leiðir til að fá þjónustu, komast í verslun eða stunda félagslíf eru langar, svo ekki sé nú minnst á það hve dýrt er að komast til höfuðstaðarins. Flutningskostnaður á vöru og þjónustu er orðinn óbærilegur fyrir byggðirnar.
Greinargerð:
1) Það er rangt og óréttlátt að leggja háa skatta á eldsneyti á þeirri forsendu að það leiði til þess að fólk noti þá minna af því. Í nútímaþjóðfélagi eru bílar sem ganga fyrir olíu eða bensíni nauðsyn, en ekki lúxus.
2) Álagning olíufélaganna er allt of há. Þetta er afar einfaldur rekstur. Vegna bruðls og óhófs virðast þau mörg á jötunni hjá okkur skattgreiðendum, sem auk okursins þurfa nú líka að borga þau út úr eigin skuldasúpu. Geti olíufélögin ekki selt okkur eldsneyti með eðlilegri álagningu, væri rétt að kanna hvort ríkiseinkasala mundi ekki gagnast okkur betur.
Landsbyggðin lifi