Hauststarfið komið í fullan gang hjá Farskólanum

Starfsfólk Farskólans er nú komið til starfa eftir sumarfrí. Skipulag haustannar er í fullum gangi og námsvísir í smíðum. Næsta ár verður áhersla lögð á heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir, starfstengd námskeið og raunfærnimat, eins og fram kemur í frétt á vef Farskólans.

Starfsemi vetrarins verður með hefðbundnu sniði; námskeið verða í boði fyrir starfsfólk fyrirtækja og stofnana, tómstundanámskeið og fleira. Nýr náms- og starfsráðgjafi, Sandra Hilmarsdóttir, er kominn til starfa. Hún býður upp á viðtöl og aðstoðar við raunfærnimat.

Skrifstofuskólinn hefst samkvæmt stundarskrá í september. Fisktækninámið og nám fyrir leikskóla- og stuðningsfulltrúa hefst einnig í september og verður hvort tveggja nánar auglýst síðar. Enn er tími til að senda hugmyndir á Farskólann varðandi námskeið þetta skólaár. Hægt er að hafa samband við Farskólann í síma 455 - 6010.

Fleiri fréttir