Hefja flokkun sorps í Húnavatnshreppi
Sífellt fleiri sveitarfélög eru að hefja flokkun á sorpi og nú ætlar Húnavatnshreppur að taka upp hið nýja fyrirkomulag í sorphirðu sem tekur gildi í apríl 2012. „Óskum við eftir góðu samstarfi íbúa við þessa breytingu,“ segir á heimasíðu Húnavatnshrepps.
Breytingin felur í sér að lögð verður til endurvinnslutunna á hvert heimili í sveitarfélaginu og þá verða því tvö sorpílát við hvert heimili, kar fyrir óflokkaðan útgang og 240 ltr. endurvinnslutunna fyrir þurrt, hreint endurvinnsluefni.
Endurvinnslutunnurnar verða afhentar í vikunni eftir páska, dagana 10.-13. apríl, ásamt leiðbeiningum um flokkun sorps til endurvinnslu. Einnig er hægt að nálgast leiðbeiningar um flokkun sorps á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samkvæmt heimasíðu Húnavatnshrepps er mikilvægt að flokka úrgang til endurvinnslu og minnka þannig það magn sem fer til urðunar. Sorphirðudögum verður fækkað við þessar breytingar og sorp hirt á þriggja vikna fresti, nema á tímabilinu júní – sept., en þá verður sorphirða á 14 daga fresti.