Hefur þú séð Bjarna Frey?

Bjarni Freyr er tvítugur, meðalmaður á hæð, klæddur í brúnar buxur og svartan leðurjakka.
Bjarni Freyr er tvítugur, meðalmaður á hæð, klæddur í brúnar buxur og svartan leðurjakka.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Bjarna Frey Þórhallssyni, 20 ára, en ekkert hefur spurst til hans síðan að morgni þriðjudags. Síðast er vitað um ferðir Bjarna Freys, á bifreiðinni UK-514 sem er Toyota Corolla, dökkrauð að lit og árgerð 2005,  á Kjalarnesi á leiðinni norður síðastliðinn þriðjudag klukkan 9:30 að morgni.

Bjarni Freyr er tvítugur að aldri, meðalmaður á hæð, klæddur í brúnar buxur og svartan leðurjakka. 

„Enn hafa engar ábendingar borist. Við höfum verið að fara að sumarhúsum á Vesturlandi og beðið lögregluembættin að aðstoða okkur. Svo höfum við haft samband við gististaði á landinu en ekki fengið vísbendingar um ferðir hans hjá því fólki. Við vonumst til að fá einhverjar vísbendingar um ferðir hans“ segir Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi.is.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Bjarna er bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1000.

Uppfært 20:00: Bjarni Freyr er fundinn samkvæmt upplýsingum  lögreglu. 

Fleiri fréttir