Hefurðu áhuga á að virkja lækinn þinn?

Hverfill smávirkjunar. Mynd: Orkustofnu.is
Hverfill smávirkjunar. Mynd: Orkustofnu.is

Smávirkjanasjóður SSNV auglýsir eftir umsóknum í Skref 1 sem er frummat smávirkjana. Tilgangur sjóðsins er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra sem eru undir 10 MW að stærð. Miðað er við fyrirliggjandi yfirlit á mögulegum rennslisvirkjunum sem upp eru taldir í skýrslu Mannvits 2018: Frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra. Þó er heimilt að bæta við fleiri virkjunarkostum með samþykki SSNV.

Sjóðurinn veitir styrki til annars vegar: Skref 1: Frummat smávirkjana og hins vegar: Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummati hönnunar og byggingarkostnaðar. Öll gögn varðandi umsóknarferlið og skýrsla Mannvits er að finna á heimasíðu SSNV: www.ssnv.is

Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018. Verkefninu verður lokið fyrir 31. maí 2019 og hámarksfjöldi verkefna sem styrkt verða er átta talsins. Auglýst verður eftir umsóknum í Skref 2 í júní 2019.

Samið hefur verið við Verkfræðistofuna Mannvit um úttekt á þeim virkjunarkostum sem styrktir verða og sér SSNV um samningsgerð við fyrirtækið. Mótframlag umsækjanda er 100.000 kr. en SSNV greiðir annan kostnað við úttektina.

Umsóknir skulu sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is en nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundsson, ingibergur@ssnv.is, s. 892 3080.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir