Heiðursgæs Blönduóss enn ekki skilað sér

Heiðursgæs Blönduóss, grágæsin SLN, hefur ekki skilað sér á túnin við heilsugæslustöðina á Blönduósi í vor eins og hún hafði gert í að minnsta kosti 14 ár. Margir bæjarbúar hafa fylgst með gæsinni í gegnum árin og hugsa hryggir til örlaga hennar, en hún hefur venjulega komið á bilinu 15. til 21. apríl.

Á vef Morgunblaðsins segir Jón Sigurðsson, fréttaritari Morgunblaðsins og sérstakur áhugamaður um gæsirnar og SLN, að hann fari einu sinni til tvisvar á dag til að athuga hvort gæsin fari ekki að skila sér. Hann fari að verða úrkula vonar um að gæsin skili sér, enda hafi hann þær fréttir að segja frá Arnþóri Þ. Sigfússyni fuglafræðingi sem merkti gæsina árið 2000 að ekki sé vitað til þess að hún hafi sést í Bretlandi í vetur.

Fleiri fréttir