Heilbrigðisráðherra úthlutar fé til heilbrigðisstofnana

Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 85 milljónir í sinn hlut. Mynd:FE
Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 85 milljónir í sinn hlut. Mynd:FE

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið skiptingu rúmlega 420 milljóna króna af fjárlögum sem varið verður til að efla tækjakost heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar sem endurnýjunarþörf er orðin brýn.

Á vef ráðuneytisins segir að samtals 421,8 milljónir króna af fjárlögum þessa árs séu ætlaðar til tækjakaupa hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Rúmur helmingur fjárins er föst fjárveiting en 200 milljónir króna er tímabundin fjárveiting ætluð til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði stofnananna. Með þessu tímabundna framlagi er verið að bregðast við uppsafnaðri þörf fyrir úrbætur í þessum efnum.

Upphæðin skiptist þannig milli stofnana með hliðsjón af þörf þeirra og stærð.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - 70 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - 60 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands - 85 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Austurlands - 85 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands - 66,8 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja  - 55 milljónir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir