Heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi verða sameinaðar

Í Fjárlögum 2014 kemur fram að heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að sameina heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni til að mæta veltutengdum aðhaldsmarkmiðum ríkisstjórnar.  Gert er ráð fyrir að ein stofnun verði í hverju heilbrigðisumdæmi, þ.e. á Norðurlandi, Suðurlandi og á Vestfjörðum.

Markmiðið með sameiningu er að skapa aukna möguleika á samstarfi og samnýtingu, kennslu heilbrigðisstétta og öflugri og stöðugri mönnun og að skapa sterkari rekstrar- og stjórnunareiningar. Með sameiningunni, segir í Fjárlögunum, fækkar ríkisforstjórum úr níu í þrjá. Þá er einnig gert ráð fyrir ákveðinni hagræðingu í innkaupum á lyfjum og hjúkrunarvörum með sameiginlegum innkaupum allra heilbrigðisstofnana í samræmi við innkaupastefnu ráðuneytisins.

Þá er lagt til að hækka komugjöld úr 1.000 kr. í 1.200 kr. í heilsugæslu og gerð tillaga um að setja á sérstakt 1.200 kr. gjald sem greitt verði fyrir hvern legudag á sjúkrahúsi en því er ætlað að koma á móti svonefndum hótelkostnaði á sjúkrahúsum. Almenn komugjöld á heilsugæslu hafa verið óbreytt frá 2008, en vísitala neysluverðs hefur hækkað síðan þá um ríflega 40%. Engar breytingar verða á gjaldtöku barna og ungmenna undir 18 ára aldri, en frá 2008 hefur þessi hópur ekki greitt gjald fyrir komu á heilsugæslustöð. Samanlagt er áætlað að þessi áform skili 381,2 m.kr. í auknar sértekjur, en þar af falla 99,9 m.kr. undir þennan málaflokk.

 

Fleiri fréttir