Heilræða– og frjósemislimrur á þorranum

Þær Jóhanna Helga Halldórsdóttir og Þóra Sverrisdóttir í Húnavatnshreppi tóku að sér fyrir hönd foreldra við leikskólann Vallaból og Húnavallaskóla, að koma á framfæri mjög áríðandi umræðu sem skapaðist á foreldrafundi á Vallabóli sl. haust. Samkvæmt heimasíðu Húnavatnshrepps snerist sú umræða um nauðsyn þess að fjölga börnum í skólunum og einnig fólki í hreppnum. 

„Aðstaðan er frábær á Stór– Húnavallasvæðinu, þar vinnur yndislegt starfsfólk sem er stöðugt að breyta og bæta, þó hefðir séu í hávegum hafðar og það er sannarlega pláss fyrir fleira gott fólk.

Á umræddum fundi sl. haust lofuðum við öðrum foreldrum og starfsfólki því að láta til okkar taka og ýta úr vör ástar– og fjölgunarátaki og voru fundarmenn sammála um að best væri að nýta þorrann til slíkra verka, þar sem yfirleitt er kalt á þorra og fólk kúrir sig saman undir dúnsængum og gæruskinnum, en jafnframt er fólk að halda blót sín og gleðja sig við görótta drykki og ærslast með hinu kyninu,“ segja þær stöllur.

Þær skora á alla sem þetta lesa að tendra nú rómantík og ástarelda út um dali og grundir og hvar sem þið eruð. „...ekkert er dásamlegra en gleðin yfir lífinu,“ bæta þær við.

„Þú bónda þinn lagin skalt lokka
með lofsyrðum, kossum og þokka -
og faðma hann frjó
í friði og ró
og fullskapað kríli svo kokka.

Þú frúnni gef kossa og kreistur
nú karl er úr læðingi leystur -
síðan þögult og þétt
bara þreifarðu rétt
á þorranum sprækur og reistur.

Svo ljúft er um rómans að rabba
og reyndu nú makann að gabba -
í gleði með þér
svo gleymi hann sér
og geti áttgott með að labba.“

Átakið hefst formlega með mikilli gleði á bóndadaginn 25. janúar nk.  Allar konur eru hvattar til að heilla menn sína upp úr skónum og karlmenn eru hvattir til þess að bregðast vel við.

„Árangur verður metinn að ári liðnu og þeir sem þykja standa sig best fá fallegar gjafir frá okkur,“ segja Jóhanna og Þóra loks með þokkafullum þorrakveðjum.

Fleiri fréttir