Heimafóður styrkir söfn í Húnavatnssýslum

F.v.: Sólveig Benjamínsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins á Reykjum, Guðmundur Karlsson, stjórnarformaður Heimafóðurs og Elín S. Sigurðardóttir, forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins. Ljósmynd: Jóhannes Torfason.
F.v.: Sólveig Benjamínsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins á Reykjum, Guðmundur Karlsson, stjórnarformaður Heimafóðurs og Elín S. Sigurðardóttir, forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins. Ljósmynd: Jóhannes Torfason.

Í gær afhenti félagið Heimafóður ehf. Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi og Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði styrki sem ætlaðir eru til viðhalds og endurbóta á húsakosti safnanna. Styrktarupphæðin til hvors safns um sig nemur 740 þúsund krónum. Afhending styrkjanna fór fram í Sjávarborg á Hvammstanga að viðstöddum stjórnarmönnum Heimafóðurs, forráðamönnum safnanna og fleiri gestum.

Sagt er frá þessu á vef Heimilisiðnaðarsafnsins. Þar er sagt frá því að starfsemi Heimafóðurs megi rekja aftur til byrjunar níunda áratugarins. Upphaflega fólst hún einkum í því að halda utan um vélasamstæðu sem malaði og kögglaði þurrt hey hjá bændum í Húnavatnssýslum. Þannig gat heimaaflað fóður fullnægt meiru af fóðurþörf búfjárins. Eftir að rúllutæknin kom til skjalanna var sjálfhætt með þessa framleiðslu.

Fyrr á þessu ári kom svo stjórn félagsins saman og þótti fara vel á því að skipta fjármunum þess milli þessara safna. Allir stjórnarmenn félagsins ásamt forráðamönnum safnanna og fleiri gestum komu saman í Sjávarborg á Hvammstanga þar sem afhending styrkjanna fór fram. Eftir afhendinguna þáðu viðstaddir kaffiveitingar og áttu saman notalega stund þar sem rifjað var upp sitthvað úr búskaparsögu héraðsins sem og um starfsemi Heimafóðurs.

 

Fleiri fréttir