Heimaleikur á Blönduósvelli í kvöld

Lið Kormáks/Hvatar. Mynd: Róbert Daníel Jónsson
Lið Kormáks/Hvatar. Mynd: Róbert Daníel Jónsson

Sameiginlegt lið Kormáks/Hvatar tekur á móti Vatnaliljum á Blönduósvelli í kvöld kl. 20. Sem stendur er lið Kormáks/Hvatar í 3. sæti riðilsins með 9 stig.

Búast má við mikilli stemmningu á vellinum en Húnavaka fer fram um helgina á Blönduósi og fjöldi gesta er í bænum. Meistaraflokksráð mun grilla og selja hamborgara í hálfleik. Heiðruð verður minning Kristjáns Blöndal Jónssonar sem lék í fjölmörg ár undir merkjum Knattspyrnudeildar Hvatar.

Enginn aðgangseyrir verður á völlinn en leikurinn verður í  boði Vilkó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir