Heimasíða fyrir söluhross á Norðurlandi vestra
Hrossaræktarsamtökin á Norðurlandi vestra hafa samið við Elku Guðmundsdóttur um að sjá um og reka síðuna icehorse.is en um er að ræða heimasíðu fyrir söluhross á Norðurlandi vestra.
Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Þyts verður Elka stödd í Húnavatnssýslum sunnudaginn 22. apríl nk. til að taka upp söluhross á myndbönd og taka ljósmyndir. Félagar í hrossaræktarsamtökunum geta mætt til myndatöku á eftirtöldum stöðum og tíma:
- Blönduósi kl. 10:00-14:00
- Hvammstanga kl 15:00-19:00
Nánari upplýsingar gefa formenn samtakana Jóhann Albertsson s 869-7992 og Magnús Jósefsson s.897-3486