Heimaslátrun heimil í örsláturhúsum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um slátrun í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum, örsláturhúsum, sem heimilar bændum að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Slík framleiðsla og dreifing hefur hingað til verið óheimil.

Á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins kemur fram að kveðið sé á um að dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun og mun kostnaður þess greiðast úr ríkissjóði.
„Það hefur lengi verið kallað eftir því að bændum verði gert kleift að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Undanfarin tvö ár hefur átt sér stað umfangsmikil vinna í samráði við bændur og Matvælastofnun við að leita leiða til að heimila þessa framleiðslu þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði. Þessi breyting sem við gerum í dag markar því tímamót enda felst í þessari breytingu mikilvægt tækifæri til að styrkja verðmætasköpun og afkomu bænda til framtíðar,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Í frétt ráðuneytisins segir að síðastliðið sumar hafi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda undirritað samkomulag um tilraunaverkefni um heimaslátrun sem hafi gengið vel og niðurstöður úr sýnatökum bænda góðar Hins vegar hafi fjareftirlit verið erfiðleikum bundið og því kveðið á um það í reglugerðinni að opinberir dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun. Sá kostnaður sem af því hlýst mun greiðast úr ríkissjóði.

Til að auðvelda bændum að nýta sér þessa heimild hefur Matvælastofnun útbúið leiðbeiningabækling á grundvelli reglugerðarinnar þar sem skýrð eru út helstu skilyrði sem gerð eru til slátrunar og stykkjunar í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum. Leiðbeiningar Matvælastofnunar má finna HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir