Heimir á Hofsósi

Í gegnum tíðina hafa þarfir sauðkindarinnar gengið fyrir öðrum þáttum í samfélaginu.  Þar er starfsemi Karlakórsins Heimis engin undantekning og undanfarinn rúman mánuð hefur kórinn verið í nokkurs konar fæðingarorlofi.  Nú er sauðburði hins vegar lokið, og ekkert því til fyrirstöðu að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í vor.  Ekki er þó svigrúm til langferða að þessu sinni, enda styttist í heyannir, og ætla þeir að halda sér því innan hreppsmarkanna og fara á Hofsós, í Höfðaborg nánar til tekið.  Þar þjófstarta þeir Jónsmessugleði þeirra Hofsósinga, fimmtudagskvöldið 20. júní næstkomandi, kl. 20:30.


Á tónleikunum verður flutt samskonar dagskrá og hefur verið á tónleikum kórsins í vetur, við góðar undirtektir gesta.  Dagskráin er þannig byggð upp að fyrir hlé er sígild karlakóratónlist á dagskránni.  Einsöngvarar í þeim hluta eru Ari Jóhann Sigurðsson og Árni Geir Sigurbjörnsson.  Eftir hlé er skipt um gír, hljómsveit skipuð kórmeðlimum stígur á stokk og sveiflan tekur völdin.  Þá fáum við til liðs við okkur Herdísi Rútsdóttur, sem er ung og upprennandi söngkona, okkur að góðu kunn eftir að hafa komið fram á Sönglögum í Sæluviku og á fleiri tónleikum.  Ekki má svo gleyma félögum okkar þeim Pétri Péturssyni og Sveini Rúnari Gunnarssyni, en þeir munu einnig syngja með okkur í seinni hluta dagskrárinnar.

Miðaverð á tónleikana er 3.000 kr.  Þess ber að geta, að 67 ára og eldri fá frítt inn á tónleikana að þessu sinni.

Í hléi verður kynning á ölföngum frá bugghúsinu Gæðingi í Útvík. Karlakórinn Heimir segir frá þessu.

Fleiri fréttir