Heimir á Hofsósi í kvöld

Karlakórinn Heimir ætlar að þjófstarta Jónsmessugleði þeirra Hofsósinga í kvöld, fimmtudaginn 20. júní, kl. 20:30.


Dagskráin er þannig byggð upp að fyrir hlé er sígild karlakóratónlist á dagskránni.  Einsöngvarar í þeim hluta eru Ari Jóhann Sigurðsson og Árni Geir Sigurbjörnsson.  Eftir hlé er skipt um gír, hljómsveit skipuð kórmeðlimum stígur á stokk og sveiflan tekur völdin.  Þá fáum við til liðs við okkur Herdísi Rútsdóttur, sem er ung og upprennandi söngkona, okkur að góðu kunn eftir að hafa komið fram á Sönglögum í Sæluviku og á fleiri tónleikum.  Ekki má svo gleyma félögum okkar þeim Pétri Péturssyni og Sveini Rúnari Gunnarssyni, en þeir munu einnig syngja með okkur í seinni hluta dagskrárinnar.

Miðaverð á tónleikana er 3.000 kr.  Þess ber að geta, að 67 ára og eldri fá frítt inn á tónleikana að þessu sinni.

Í hléi verður kynning á ölföngum frá bugghúsinu Gæðingi í Útvík. Karlakórinn Heimir segir frá þessu.

Fleiri fréttir