Heimir með tónleika í Blönduóskirkju í kvöld

Karlakórinn Heimir heldur tónleika í Blönduóskirkju í kvöld 14. mars kl. 20:30. Með kórnum koma fram þau Guðrún Gunnarsdóttir, Ari Jóhann Sigurðsson, Pétur Pétursson, Árni Geir Sigurbjörnsson og Sveinn Rúnar Gunnarsson einsöngvarar.

Fyrir hlé verður hefðbundið og þétt karlakóraprógram en eftir hlé færist meira fjör í leikinn og þá kemur Guðrún ásamt hljómsveit og verður stemningin gerð ógleymanleg.

Fleiri fréttir