„Heimsmeistaramót“ í Lomber
Laugardaginn 20. júlí nk. verður haldið á Blönduósi „heimsmeistaramót í Lomber“. Mótið fer fram í tengslum við árlega Húnavöku og verður það í annað sinn sem slíkt mót er haldið. Spilað verður á Hótel Blönduós og hefst mótið klukkan 12:00 með léttum hádegisverði.
Spilaður verður lomber að hætti heimamanna, notaðir spilapeningar og haldið skorblað sem mun skera úr um hver hampar „heimsmeistaratitlinum“.
Þátttökugjald er kr. 7000,- og innifalið í því verði er léttur hádegisverður, miðdagskaffi og kvöldverður. Taka má með sér gesti í kvöldverðinn og kostar hann kr. 4500,-.
Gistingu er hægt að fá á Hótel Blönduós og kostar tveggja manna herbergi kr. 17.000,- fyrir nóttina en 25.000,- ef teknar eru tvær nætur. Herbergi á gistiheimilinu kostar kr. 11.000,- fyrir nóttina en kr. 15.000,- ef teknar eru tvær nætur. Síminn á Hótel Blönduós er 452 4205.
Spilamenn og konur eru hvött til að skrá sig sem allra fyrst en tekið verður við skráningum á meðan húsrúm leyfir. Þátttaka tilkynnist til Lárusar í síma 820 1300 eða póstfangið gladheimar@simnet.is . Húni.is segir frá þessu.