Heimsóknum erlendra ferðamanna um Akureyrarflugvöll fjölgar

Fjölgun millilandafarþega um Akureyrarflugvöll hefur verið mikil undanfarin ár en samkvæmt tölum Isavia nam fjölgunin árið 2017 24% frá fyrra ári, árið 2018 var fjölgunin enn meiri eða 70% miðað við fyrra ár og árið 2019 nam fjölgunin 38% miðað við árið á undan, segir á vef Markaðsstofu Norðurlands. Það segir einnig að nú styttist í að ferðamenn á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel komi í fyrstu vetrarferð ársins til Norðurlands, en þær munu verða átta talsins frá 14. febrúar til 9. mars.

„Fjölgun í heimsóknum erlendra ferðamanna yfir vetrartímann er kærkomin innspýting fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu. Þá er þessi stöðugi og mikli vöxtur merki um þann árangur sem hefur náðst í markaðssetningu áfangastaðarins Norðurlands og undirstrikar mikilvægi þess að ráðist verði í uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til framtíðar. Auk þess eru flugferðir Voigt Travel frábært tækifæri fyrir íbúa Norðurlands að skreppa til Amsterdam. Ferðaskrifstofa Akureyrar annast sölu á ferðum frá Akureyri til Amsterdam og hefur þessu framtaki verið vel tekið af heimafólki,“ segir á northiceland.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir