Heitavatnslaust á Blönduósi og í Húnavatnshreppi í fyrramálið
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
17.01.2014
kl. 08.48
Vegna vinnu við stofnæð hitaveitunnar að Reykjum verður heitavatnslaust austan Blöndu á Blönduósi og í Húnavatnshreppi frá klukkan 9-13 laugardagsmorgun 18. janúar næstkomandi. Vatnið verður ekki tekið af á Skagaströnd.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rarik.
