Heljarinnar veisla á uppskeruhátíð Neista
Uppskeruhátíð nemenda knapamerkja og barnastarfs Neista var haldin þann 26. apríl sl. Hætt var við sýningu vegna veðurs en á heimasíðu Neista segir að foreldrar hafi mætt með kökur og úr varð heljarinnar veisla og mætingin frábær.
Á vegum Neista voru haldin hefðbundin námskeið í vetur fyrir krakka yngri en 12 ára og svo knapamerki 1, 2, 3, 4 og 5. Kennarar voru þau sömu og í fyrra, þau Heiðrún Ósk Eymundsdóttir og Pétur Örn Sveinsson, reiðkennarar í Saurbæ í Skagafirði.
Frá Uppskeruhátíð nemenda knapamerkja og barnastarfs Neista. Ljósm./Neisti.is
„Þrátt fyrir leiðindaveður í allan vetur féllu mjög fáir dagar niður. Þeim finnst gaman að koma á Blönduós og dást að því að svona lítið félag eins og Neisti skuli geta boðið uppá knapamerkjanámskeið. Þeim finnst frábært að svona stigskipt nám eins og knapamerki sé í boði í dag,“ segir á heimasíðu hestamannafélagins.
Viðurkenningar og gjafir voru afhentar á uppskeruhátíðinni til þeirra barna og unglinga sem voru á námskeiðunum.
„Nú í vor luku 3 börn og 1 fullorðinn prófi í knapamerki 1, 2 unglingar og 2 fullorðnir í knapamerki 2, 2 unglingar og 1 fullorðinn í knapamerki 3, en knapamerki 3 er kennt á 2 árum og eru 4 í seinni hópnum. Knapamerki 4 er líka kennt á 2 árum og þar er 1 unglingur. Þrír fullorðnir luku prófi í knapamerki 5 og eru þau þau fyrstu til að ljúka knapamerki 5 á Blönduósi sem er frábært. Allt er hægt ef vilji og metnaður er til staðar,“ segir á heimasíðunni.
Myndir og nánari umfjöllun um uppskeruhátíðina má finna á heimasíðu Neista.