Hélt höfði mannsins upp úr ánni
Fólksbíll valt ofan í Laxá í Ásum, 4 km sunnan við Blönduós, laust eftir kl. 19 í gærkvöldi og var það fyrir snarræði vegfaranda, sem kom að slysinu skömmu eftir að bíllinn fór út af, að ekki fór verr.
Mbl.is greinir frá því að bíllinn, sem var á leiðinni til Blönduóss, virðist hafa farið yfir á rangan vegarhelming og yfir vegrið skömmu áður en hann kom að brúnni. Bíllinn endaði svo á hvolfi út í ánni og gat maðurinn ekki losaði sig af sjálfsdáðum.
Vegfarandi kom strax á vettvang og náði að hjálpa manninum og láta lögreglu vita. Hann hélt höfði mannsins upp úr ánni þar til sjúkrabíll og slökkvilið komu á staðinn. Lögreglan segir að ef vegfarandinn hefði ekki komið að slysinu hefði getað farið illa og ökumaðurinn hreinlega drukknað.
Ökumaðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Blönduóss til skoðunar en ekki er vitað um nánar um meiðsl hans en hann var orðinn kaldur. Óvíst er hvers vegna bíllinn fór út af, en engin hálka var á veginum.