Héraðsdýralækni vantar í Norðvesturumdæmi

Matvælastofnun hefur auglýst eftir metnaðarfullum einstaklingi í starf héraðsdýralæknis í Norðvesturumdæmi frá og með 1. janúar 2013. Um er að ræða fullt starf og er umdæmisskrifstofan staðsett á Sauðárkróki.

Helstu verkefni héraðsdýralæknis eru skipulag eftirlits með heilbrigði og velferð dýra sem og með framleiðslu matvæla, framkvæmd opinbers eftirlits, sóttvarnir og varnir gegn smitsjúkdómum dýra auk gerð eftirlitsáætlana og skýrslugerðir skipulag vaktþjónustu í umdæminu, umsjón með rekstri umdæmisskrifstofu og önnur verkefni sem starfsmanni eru falin.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánar á heimsíðu MAST

Fleiri fréttir