Héraðsmót USAH

Héraðsmót Ungmennasambands Austur-Húnvetninga verður haldið á Blönduósvelli í dag og næsta þriðjudag, 14. júlí, og hefst klukkan 18:00 báða dagana. Mótið er jafnframt minningarmót um Þorleif Arason sem lést 11. nóvember 1991. Mótið er fyrir 10 ára og eldri og þurfa þátttakendur að vera skráðir í aðildarfélög USAH. Flokkaskipting er eftirfarandi: 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára 16-19 ára og 20 ára og eldri.

Keppnisgreinar:
10-15 ára: 60/100m hlaup, 800m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp og spjótkast.
16 ára og eldri: 100m hlaup, 200m hlaup, 800m/1500m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast og þrístökk (20 ára og eldri).

Veittur er verðlaunapeningur fyrir fyrstu þrjú sætin, stigahæsti einstaklingur í hverjum flokki fær bikar til eignar auk þess fær stigahæsta félagið farandbikar.

Verðlaun verða veitt fyrir besta afrek kvenna og besta afrek karla í kastgreinum til minningar um Þorleif Arason sem var slökkviliðsstjóri á Blönduósi og lést aðeins 46 ára gamall. Þorleifur var mikill áhugamaður og þátttakandi í frjálsum íþróttum og voru kastgreinar hans sérgrein. Að auki fær sá́ sem nær besta afreki á mótinu í kastgreinum farandbikar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir