Herdís formaður stjórnar Byggðarstofnunar
Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var í Vestmannaeyjum í dag var greint frá því að Herdís Sæmundardóttir á Sauðárkróki hefði verið skipuð formaður stjórnar Byggðastofnunar. Herdís, sem er fræðslustjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, hefur áður gegn embættinu, á árunum 2003-2008.
Herdís hefur gegnum tíðina gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, m.a. setið á þingi sem varaþingmaður, verið í sveitarstjórn og á hún sæti í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga. Hún er með BA próf í norsku og dönsku og uppeldis- og menntunarfræði og einnig meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Hún kenndi m.a. um árabil við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 106/1999 um Byggðastofnun skipar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sjö menn í stjórn stofnunarinnar og jafnmarga til vara til eins árs í senn. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar jafnframt formann og varaformann. Herdís tekur við sætinu af Þóroddi Bjarnasyni. Núverandi stjórn skipa eftirfarandi:
- Herdís Sæmundardóttir, formaður
- Einar E. Einarsson, varaformaður
- Valdimar Hafsteinsson
- Ásthildur Sturludóttir
- Karl Björnsson
- Oddný María Gunnarsdóttir
- Sigríður Jóhannesdóttir