Hestamannafélagið Neisti efnir til námskeiðahalds

Hestamannafélagið Neisti býður upp á  námskeið í hestamennsku á Blönduósi í vetur en þau eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar á heimasíðu Neista, www.neisti.net, eftir að skráningu lýkur en hún fer fram hjá Önnu Margréti á amj@bondi.is eða í síma 848-6774 fyrir 20. janúar.
 

Námskeiðin sem í boði eru:

Almennt reiðnámskeið 8 ára og eldri - 1 x í viku

Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl.

Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr.
Utan félags, verð: 25.000 kr.

Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði

Ætlað fyrir 7 ára og yngri.
Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf.
Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði. Námskeið hefst í byrjun febrúar.

Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
Verð: 5.000 kr.

Reiðnámskeið (keppnisnámskeið) - 4 helgar – börn, unglingar og ungmenni

Lögð verður áhersla á vel skipulagða þjálfun og uppbyggingu keppnishests og knapa. Kennslan verður einstaklingsmiðuð, hver knapi setur sér markmið í sinni þjálfun og unnið verður markvisst að þeim markmiðum. Gerðar verða meiri kröfur til ásetu, stjórnunar, jafnvægis og gangskiptinga en á almennu reiðnámskeiði. Bókleg kennsla fer fram í fyrirlestrarformi. Námskeiðið fer að miklu leyti fram inni í reiðhöll þar til veður leyfir að farið verði út á keppnisvöllinn. Þetta námskeið er tilvalið fyrir þá sem stefna á að taka þátt í mótum í vetur og næsta sumar.
Kennsla hefst í febrúar.

Kennari er Bergrún Ingólfsdóttir
Verð 20.000 kr.

Knapamerki 1 og 2

Vegna covid 19 tókst ekki að ljúka knapamerkjum 1 og 2 í fyrra. Stefnt er að því að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í fyrra og ljúka þessum námskeiðum. Gott væri að heyra frá þeim sem tóku þátt í fyrra, hvort það ætli ekki allir að vera með í vetur og klára námskeiðið.

Kennari: Bergrún Ingólfsdóttir

Eins væri gott að frétta hvort áhugi er hjá fleirum en þeim sem voru í knapamerkjum í fyrra. Ef nægur áhugi reynist, verður reynt að bjóða upp á heil námskeið í knapamerkjum 1 og/eða 2. Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir