Hestapest enn á Hólum

 Enn er hluti hrossa á Hólum sýktur af hestapest en pestin hefur herjað á hross á Hólum síðan snemma á árinu. Engu að síður munu nemendur þreyta langþráð vorpróf sín í hestafræðum á morgun en ekki mátti miklu muna að prófin stæðu.

Að sögn Víkings Gunnarssonar á Hólum hefur eitthvað verið um að hross séu að taka pestina aftur og virðast þau ekki  öll mynda það sterkt ónæmi gegn pestinni að þau þoli að vera í námunda við hóstandi hross.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir