Hestatannlæknirinn og Lopalind unnu til verðlauna í Ræsingu Húnaþinga

Ánægðir þátttakendur með verðlaun sín. Mynd af vef SSNV.
Ánægðir þátttakendur með verðlaun sín. Mynd af vef SSNV.

Verkefninu Ræsing Húnaþinga lauk í síðustu viku þar sem þrjú verkefni voru verðlaunuð. Ræsing Húnaþinga var samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og sveitarfélaga í Austur- og Vestur Húnavatnssýslum. Alls skiluðu sjö verkefni inn viðskiptaáætlun. 

Þátttakendur fengu tólf vikur til að vinna viðskiptaáætlun fyrir verkefnin sín en á þeim tíma fengu þátttakendur verkefnanna fræðslu og stuðning frá verkefnissjóra Nýsköpunarmiðstöðvar við gerð viðskiptaáætlunarinnar.

Í dómnefnd sátu fulltrúar frá sveitarfélögunum í Húnavatnssýslum og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Verkefnin voru metin út frá nýsköpun á svæðinu, atvinnusköpun, viðskiptaáætluninni sjálfri, raunhæfi verkefnis og líkum á að verkefninu verði hrint í framkvæmd.

Sonja Líndal hlaut eina milljón króna í verðlaun fyrir verkefnið Hestatannlæknirinn og Olga Lind Geirsdóttir hlaut einnig eina milljón fyrir verkefnið Lopalind, en verkefnið gengur út á að setja á fót spunaverksmiðju.

Verkefni Biopol, Grásleppa í neytendaumbúðir, hlaut einnig hvatningarverðlaun til áframhaldandi þróunar á sínu verkefni en það gengur út á að finna leiðir til að fullnýta grásleppu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir