Hestum bjargað úr haughúsi

Óskað var eftir aðstoð Björgunarfélagsins Blöndu sl. mánudag við að ná tveimur hestum sem lent höfðu ofan í haughúsi í hesthúsi í Arnargerði á Blönduósi. 

Nokkrir félagar úr björgunarsveitinni mættu á staðinn og komu böndum á hrossin, með hjálp viðstaddra.

„Voru hestarnir hífðir að nokkru leyti upp og síðan varð að beita handaflinu. Aðstæður voru frekar subbulegar eins og gefur að skilja en allt gef vel að lokum,“ segir á Húna.is.

 

Fleiri fréttir