Hestur í óskilum

Tveggja til þriggja vetra hestur er í óskilum í Húnavatnshreppi en hann er brúnblesóttur og leistóttur á vinstra afturfæti. Hesturinn sem kom fyrir á Auðkúlu 1er ógeltur, ómarkaður og auðkennalaus.

Sá sem sannað getur eignarétt sinn á hestinum fyrir 13. apríl 2011 fær hann afhentan af fulltrúa Húnavatnshrepps gegn greiðslu áfallins kostnaðar. Að öðrum kosti verður hesturinn seldur á opinberu uppboði af Sýslumanni Húnvetninga, að Hólabaki, miðvikudaginn 13. apríl 2011 kl. 15.00.

Fleiri fréttir