Hildur Eir á súpu- og skemmtikvöldi

Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa stendur fyrir súpu- og skemmtikvöldi fimmtudaginn 27. mars kl. 19:30 að Þverbraut 1. Í boði verður ljúffeng súpa, brauð, kaffisopi og áhugaverður fyrirlestur.

Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur á Akureyri, er fyrirlesari kvöldsins. Fyrirlestur hennar heitir Sjálfsmyndir og fyrirmyndir. Hildur Eir er mörgum kunn fyrir hressilega pistla sína sem birtir eru víða, til dæmis í Akureyri Vikublaði.

Aðgangseyrir er krónur 2000 og tekur klúbburinn fagnandi á móti öllum gestum.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir