Hitaveitudagar á Skagaströnd
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
29.08.2012
kl. 08.33
Opið hús og kynning á væntanlegri hitaveitu verður í Íþróttahúsinu á Skagaströnd föstudaginn 31. ágúst frá kl. 14-18 og laugardaginn 1. september frá kl. 10-16.
„Komið og fræðist þar sem ýmsir sérfræðingar í hitaveitumálum sitja fyrir svörum,“ segir á heimasíðu Skagastrandar en að fundinum standa Svf. Skagaströnd og RARIK.