Hitaveitudagar á Skagaströnd
Dagana 31. ágúst og 1. september sl. var efnt til Hitaveitudaga á Skagaströnd, þar sem íbúum gafst kostur á að kynna sér ýmis mál er tengjast hitaveituvæðingu staðarins og hvernig framkvæmdir við lagningu hitaveitunnar stendur en þær eru þegar hafnar. Ákvörðun um hitaveitu til Skagastrandar var tekin í lok síðasta árs og var aðdragandinn nokkuð langur eins og kom fram í ávarpi Tryggva Þórs Haraldssonar forstjóra RARIK við setningu Hitaveitudagana.
Í Feyki í dag er umfjöllun um verkefnið og viðtöl við Tryggva Þór og Adolf H. Berndsen oddvita sveitarstjórnar Skagastrandar þar sem þeir fara yfir stöðuna og hvernig framtíðarhorfur hitaveitumála á Skagaströnd líta út.
-Staðan á verkinu nú er þannig að við erum að leggja stofnlögnina frá Reykjum að Blönduósi og er sá áfangi á áætlun. Við gerum ráð fyrir að því verki ljúki núna í haust. Búið er að byggja dælustöðina upp á Blönduósi og er verið að semja við aðila um frágang á búnaði hennar, segir Tryggvi Þór en Rarik stendur nú í viðræðum við Vegagerðina og Blönduósbæ um hvernig farið verður með lögnina yfir Blöndu.
Adolf segist halda að þetta eigi eftir að hafa gríðarlega jákvæð áhrif bæði fyrir búsetu og framtíðarhorfur Skagastrandar. -Dæmin hafa sýnt það að alls staðar þar sem hitaveitur hafa komið, breytir það búsetuskilyrðum og möguleikum atvinnulífs. Þetta eru með betri fréttum sem Skagaströnd hefur staðið frammi fyrir lengi, segir Adolf.
Nánar um málið á Feyki sem kom út í morgun.