Hitaveituframkvæmdir á Blönduósi
Hafnar eru framkvæmdir við lagningu hitaveitu út á Skagaströnd en í síðustu viku var sagt frá því að framkvæmdir væru hafnar á Skagaströnd. Nú hefur Rarik hafist handa að nýju á Blönduósi en í fyrra var lögnin frá Reykjum á Blönduós endurnýjuð.
Í gærmorgun var byrjað að grafa í brekkunni neðan gamla vatnstankinn en þar mun hitaveitulögnin liggja sem endar síðan út á Skagaströnd. Nú er verið að undirbúa að hengja nýja lögn undir Blöndubrú í stað þeirrar sem fyrir er en síðan verður nýja lögnin lögð upp á kirkjuhól og þaðan meðfram Holtabrautinni. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í september n.k. Húni.is segir frá þessu.