Hitaveituframkvæmdir ganga vel

Framkvæmdum við lagningu hitaveitu á Skagaströnd miðar vel áfram en reiknað er með að þeim ljúki í haust. Samhliða er lagður ljósleiðari í öll hús í sveitarfélaginu. Í maí á þessu ári var fyrsta skóflustungan tekin í dreifikerfi hitaveitu á Skagaströnd og hafa framkvæmdir staðið yfir í allt sumar.

Á vef Húna.is er sagt frá því að ákvörðun um hitaveitu til Skagastrandar var tekin árið 2011. Í fyrrahaust var lokið við að leggja stofnæð frá Reykjum til Blönduóss. Í vor hófst lagning stofnlagnar frá Blönduósi til Skagastrandar og er gert ráð fyrir að þeim áfanga ljúki í haust. Í vor var einnig hafist handa við lagningu dreifikerfisins á Skagaströnd, sem einnig er gert ráð fyrir að ljúki í haust. Íbúar munu því geta tengst veitunni í haust ef allar áætlanir ganga eftir. Meðfylgjandi myndir voru teknar af framkvæmdum í gær.

Mynd: Húni.is

Mynd: Húni.is

Mynd: Húni.is

Mynd: Húni.is

Fleiri fréttir