Hjallastefna kynnt á Skagaströnd
Íbúafundur um skólamál á Skagaströnd verður haldinn fimmtudaginn 19. september nk. kl. 17.30-19.30, í félagsheimilinu Fellsborg. Margrét Pála Ólafsdóttir, fræðslustjóri Hjallastefnunnar mun koma á fundinn og halda fyrirlestur um hvað Hjallastefnan gæti gert fyrir Skagaströnd.
Á heimasíðu Skagastrandar segir að eftir fyrirlesturinn verði fyrirspurnir og umræður.