Hjólað í vinnuna 2020

Miðvikudaginn 6. maí nk. mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefja heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna í átjánda sinn sem standa mun að vanda yfir í þrjár vikur eða til 26. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta. 

„Við þær sérstöku aðstæður sem nú ríkja í þjóðfélaginu er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og sinna sinni daglegu hreyfingu. Það er mjög mikilvægt fyrir vinnustaði landsins að huga að vel að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum. Verkefnið Hjólað í vinnuna er góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferða-máti og jafnframt eru þær frábær útivist, hreyfing og öflug líkamsrækt,“ segir í tilkynningu frá ÍSÍ. 

Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær. Í fyrsta lagi vinnustaðakeppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miða við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Og í öðru lagi kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liði. Í ár eru þau hvött sem vinna heima hjá sér að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annann virkan ferðamáta sem nemur kílómetrum til og frá vinnu.

„Einfaldara getur það ekki verið og allir geta tekið þátt. Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning á hjólreiðum sem heilsusamlegum samgönguvalkosti. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitafélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk.“

Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er hægt að finna á hjoladivinnuna.is en þar má einnig finna reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.  

Startað í Laugardal

Hjólað í vinnuna verður sett með hátíðlegum hætti miðvikudaginn 6. Maí kl. 8:30 í Þróttaraheimilinu Laugardal. Boðið verður upp á ljúffengt bakkelsi og gestum boðið að hlýða á stutt og hressileg hvatningarávörp;  

         Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ 
         Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
         Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra
         Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
         Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
         Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
         Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn
         Jóhann Alfreð uppistandari keyrir mannskapinn í gang

Að ávörpunum loknum munu gestir hjóla átakið formlega af stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir