Hjólreiðamanni komið til aðstoðar í Langadal

Lögreglan á Blönduósi aðstoðaði hjólreiðamann í Langadal í morgun en það var skólabílstjóri sem hafði komið auga á manninn á ferð sinni um dalinn og tilkynnt lögreglu. Að sögn Kristjáns Þorbjörnssonar yfirlögregluþjóns á Blönduósi var hjólreiðamaðurinn hinn slakasti þegar lögreglunni bar að garði og ekkert óttasleginn þrátt fyrir bylinn.

Ferðamaðurinn, sem var frá Þýskalandi, hafði gist í tjaldi sínu í Langadal um nóttina og ætlaði að hjóla til Blönduóss í dag. Hjólið hans sem var klyfjað af farangri fauk fljótlega langt út af veginum og þegar lögreglan kom honum til aðstoðar þá lá ferðamaðurinn á farangri sínum til að varna því að hann fyki burt.

Eftir barninginn við að koma hjólinu og farangri hans í lögreglubifreiðina, í hálku og slæmu skyggni, var ferðalangnum ekið á Blönduós.

Fleiri fréttir