Hjónin á Geitaskarði útnefnd heiðursfélagar Félags ferðaþjónustubænda
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
06.04.2014
kl. 12.12
Ásgerður Pálsdóttir og Ágúst Sigurðsson á Geitaskarði í Langadal hlutu útnefninguna heiðursfélagar Félags ferðaþjónustubænda. Ásgerður og Ágúst hafa rekið ferðaþjónustu á Geitaskarði í fjölda ára en samkvæmt vef Ferðaþjónustu bænda hafa félagsmál verið þeim afar hugleikin.
Ágúst hefur komið bæði að stjórnarstörfum fyrir Félag ferðaþjónustubænda sem og Ferðaþjónustu bænda hf.
Útnefningin fór fram á á nýafstöðnum aðalfundum Ferðaþjónustu bænda hf. og Félags ferðaþjónustubænda sem haldnir voru 24. og 25. mars á Hótel Dyrhólaey í Mýrdal.
Hér má sjá nánar um Geitaskarð í Langadal.