„Hlaup eru hreyfing til fyrirmyndar!“
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á morgun, laugardaginn 16. júní, um land allt. Markmiðið með hlaupinu er samkvæmt heimasíðu Sjóvá að vekja konur til umhugsunar um mikilvægi hollrar hreyfingar og útiveru. „Hlaup eru hreyfing til fyrirmyndar!,“ segir á heimasíðunni.
Í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ vildi Kvennahlaupsnefndin láta gott af sér leiða í þágu kvenna. Því ákveðið að hrinda af stað söfnun á nærfatnaði fyrir konur, í samstarfi við Rauða Kross Íslands, þar sem þörfin fyrir nærfatnað er mjög mikil á þeim svæðum sem Rauði krossinn starfar við neyðarhjálp.
„Við hvetjum því allar konur að taka þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ og gefa um leið notuðum nærfatnaði framhaldslíf,“ segir á Sjóvá.is
Þáttökugjald er 1250 kr. og hlaupið verður frá eftirfarandi stöðum á Norðurlandi vestra:
Hvammstangi
Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga kl. 11. Vegalengdir í boði: 2 km - 5 km og 10 km. Forskráning í síma 897-9300 eða á netfangið usvh@usvh.is. Frítt í sund að loknu hlaupi.
Blönduós
Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi kl. 11. Vegalengdir í boði: 2,5 km - 5 km. Forskráning í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar 12. júní kl. 16-19. Frítt í sund.
Skagaströnd
Hlaupið frá íþróttahúsinu kl. 11. Vegalengdir í boði: 1 km, 2 km og 5 km. Forskráning í söluskálanum frá 13. júní. Boðið verður upp á ávexti og drykki að hlaupi loknu.
Sauðárkrókur
Hlaupið frá Sundlaug Sauðárkróks kl. 11, upphitun hefst 10:45. Vegalengdir í boði: 2 km, 5 km og 7 km. Forskráning í Þreksport á opnunartíma og í sundlauginni 13. og 14. júní frá kl. 18 - 20. Frítt í sund og hressing í boði að loknu hlaupi.
Hólar
Hlaupið frá aðalbyggingu Hólaskóla - Háskólans á Hólum kl. 11. Vegalengdir í boði: 3 km og 5 km. Forskráning hjá Sillu í s: 865 3582 eða á netfangið silla@gsh.is
Varmahlíð
Hlaupið frá Sundlauginni í Varmahlíð kl. 10:30. Vegalengdir í boði: 2,5 km og 5 km. Forskráning hjá Stefaníu Fjólu á Birkimel 12 frá 12. júní. Frítt í sund að loknu hlaupi.
Hofsós
Hlaupið frá sundlauginni á Hofsósi kl. 11. Vegalengdir í boði: 1 km og 3 km. Forskráning í Sundlauginn á Hofsósi í vikunni fyrir hlaup. Frítt í sund að loknu hlaupi.
Fljót
Hlaupið frá Haganesvík að Sólgarðaskóla kl. 11. Vegalengdir í boði: 3 km og 4 km.