Hlaup og Héraðsmót í Austur-Hún.

Héraðsmót USAH verður haldið á Blönduóssvelli, mánudaginn 11. júlí og þriðjudaginn 12. júlí og byrjar keppni kl. 18:00 báða dagana. Mótið er fyrir alla 11 ára og eldri. Föstudaginn 15. júlí kl. 15:00 verða hlauparar Friðarhlaupsins 2011, á Blönduósi og ætla þeir að stoppa við á frjálsíþróttavellinum og vera með leiki og fleira skemmtilegt fyrir unga sem aldna.

Hið árlega Blönduhlaup verður haldið að venju á Húnavökunni, laugardaginn 16. júlí og verður hlaupið ræst kl. 11:00, skráning hefst  kl. 10:00. Þeir sem ætla sér ekki að taka þátt í hlaupinu sjálfu en langar að vera starfsmenn í hlaupinu geta haft samband við Ingu framkvæmdastjóra USAH með því að senda tölvupóst á usah@simnet.is eða hringja í síma 844-7043.

Fleiri fréttir