Hlaupadýr verði einungis greidd ráðnum veiðimönnum
Á síðasta fundi landbúnaðarnefndar Blönduósbæjar voru ræddar áætlanir um framlög sveitarfélagasins til refa- og minkaveiða. Fram kom að bæjarstjórn hefur áætlað að veita 250 þúsund krónum til þess málaflokks fyri árið 2011 að viðbætu framlagi ríkisins til minkaveiða sem í fyrra nam rúmum 63 þúsund krónum.
Nefndin leggur til að haft verði samráð við nágrannasveitarfélög með verðlagningu og vinnulag við grenjavinnslu og refa- og minkaveiðar auk þess að keyptar verði minkasíur og í staðin skorið niður fjármagn til minkaleita. Nefndin leggur auk þess til að hlaupadýr verði einungis greidd ráðnum veiðimanni eða mönnum sveitarfélagsins.