Hlýindi í spánum
Íbúar á Norðurlandi vestra og reyndar víða á landinu mega búast við asahláku og er varað við hugsanlegum afleiðingum hennar. Fólk er beðið um að moka frá niðurföllum, kjallaratröppum og svölum svo eitthvað sé nefnt. Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan 8-15, en mun hvassara í hviðum. Lægir í nótt.
Hvessir aftur um tíma í fyrramálið. Rigning með köflum og milt í veðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Sunnan 10-18 m/s með talsverðri rigningu og hita 4 til 8 stig, en snýst í suðvestan 5-13 með slydduéljum V-til síðdegis og kólnar.
Á sunnudag:
Suðlæg átt, 8-13 m/s og stöku skúrir eða él, en hvessir með rigningu eða slyddu vestast á landinu um kvöldið. Frost 1 til 8 stig og kaldast í innsveitum, en hiti 0 til 5 stig S- og V-lands.
Á mánudag:
Suðaustlæg átt og rigning með köflum, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Snýst í suðvestanátt með éljagangi, en björtu eystra. Hiti kringum frostmark.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir norðanátt með snjókomu, en bjart S- og V-lands.