Hlýnandi veður á miðvikudag
Nú má víða sjá hvíta jörð og þar sem hiti erum um frostmarki er fólk hvatt til að vara sig á hálku á vegum.
Veðurspá dagsins segir til um norðan 3-10 og úrkomulítið. Norðaustlæg átt 5-13 og él undir kvöld, en hægari og þurrt að kalla síðdegis á morgun. Hiti um eða undir frostmarki.
Spá næstu daga:
Á þriðjudag:
NV 8-13 m/s NA-til fram eftir degi annars fremur hæg N-læg átt. A-lægari um kvöldið. Stöku él norðantil, en léttir til síðdegis. Bjartviðri syðra. Hiti 2 til 7 stig S-til, en um frostmark fyrir norðan.
Á miðvikudag:
Vaxandi suðaustan- og austanátt, 10-15 m/s S- og V-lands með morgninum, en 8-13 N- og A-lands síðdegis. Hvassari um kvöldið. Rigning, einkum S-og V-lands og hlýnandi veður.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt 8-15 og rigning, en þurrt að kalla NA-til. Milt í veðri.
Á föstudag:
Suðlæg átt og rigning eða skúrir S- og V-lands en úrkomulítið N-til. Heldur kólnandi í bili.
Á laugardag:
Austlæg átt og fremur úrkomusamt. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins NA-til.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með ofankomu fyrir norðan, en styttir upp að mestu syðra. Hiti breytist lítið.