Hólaskóli í ráðhúsinu á Háskóladaginn

Háskóladagurinn, árlegur kynningardagur háskólanna, verður laugardaginn 19. febrúar næstkomandi. Þá munu langflestir háskólar á Íslandi kynna námsframboð sitt, aðstöðu og annað sem máli skiptir.

Að þessu sinni munu fulltrúar Hólaskóla verða í Ráðhúsinu í Reykjavík, milli kl. 11:00 og 16:00. Þar verða einnig fulltrúar frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, Háskólanum á Akureyri og Listaháskóla Íslands. Auk þess mun þar verða unnt að afla upplýsinga um námsframboð danskra og sænskra háskóla.

Á sama tíma verður opið hús í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.

Væntanlegir nýstúdentar og aðrir sem kunna að hyggja á háskólanám á næstu misserum eru hvattir til að nýta sér daginn til að kynna sér hinar fjölbreyttu námsleiðir sem í boði eru. Allir velkomnir!

Fleiri fréttir