Hollvinasamtök HSB færa HSB hjartaómtæki

Hollvinasamtök HSB færðu stofnuninni að gjöf hjartaómtæki að andvirði 4.859.011 kr. sl. fimmtudag en undanfarna mánuði hefur staðið yfir söfnun vegna kaupa á tækinu. Samkvæmt heimasíðu HSB hafa fjölmörg fyrirtæki félagasamtök og einstaklingar lagt þessu máli lið.  

Hjarta og lífstílssjúkdómar hafa færst í vöxt á liðnum árum og þegar upp kom sú staða að hjartalæknir réðst til starfa hjá HSB var einsýnt að til þess að hann nýttist sem best yrði að efla tækjakost stofnunarinnar og er gleðilegt að sjá þetta tæki komið í notkun,“ segir á heimasíðu HSB.

Tækið er af gerðinni Mindray M7 Digital og eru seljendur Logaland heilbrigðisvörur í Reykjavík. Á heimasíðunni er tekið fram að enn vantar um 400.000 kr. til að ljúka söfnuninni og eru þeir sem aflögufærir hvattir til að leggja málefninu lið. Söfnunarreikningur Hollvinasamtakanna er þessi: 0307-13-700270, kt. 490505-0400

„Þeim sem hafa gert þessa gjöf að veruleika eru hér með færðar bestu þakkir fyrir,“ segir loks á heimasíðunni.

 

Fleiri fréttir