Hollywoodhorn vikunnar

Íslenska kvikmyndin Borgríki, sem frumsýnd var sl. föstudag, hefur vakið mikla athygli, innanlands sem utan. Mbl.is greinir frá því að bandaríski kvikmyndargerðarmaðurinn James Mangold hefur lýst áhuga á að endurgera myndina fyrir Bandaríkjamarkað.

Margold er best þekktur að leikstýra kvikmyndunum Walk the Line, 3:10 to Yuma og Girl Interupted. „Það byrjuðu þreifingar í sumar þegar kollegi minn kynnti myndina fyrir þessum aðilum og svo varð þetta snjóbolti sem óx mjög hratt þar til hann komst á þennan fína stað,“ segir Ólafur de Fleur Jóhannesson leikstjóri myndarinnar í viðtali við mbl.is. Hér er hægt að sjá myndband um gerð myndarinnar.

 

Kris aldrei heimsótt Kim

Sögusagnir eru á lofti um að brestir séu nú þegar komnir í hjónaband Kims Kardashians og Kris Humphries þótt hjónakornin hafa einungis verið gift í 8 vikur. Kim og Kris endurnýjuðu svo hjúskaparheitin í sjónvarpsþætti Ellen DeGeneres fyrir þrem vikum.

Að sögn heimildarmanns Star tímaritsins stefnir hjónabandið í glötun: „Ég veit ekki hvenær þau munu tilkynna skilnaðinn en þetta er búið hjá þeim. Þau eru að skilja. Kim hefur dvalist á hóteli í New York og Kris hefur aldrei heimsótt hana!“ Hér má sjá myndbandið þar sem Ellen gefur Kim og Kris saman.

Augun opin fyrir nýjum jökkum

Leikarinn Ryan Gosling er með þráhyggju fyrir því að kaupa sér nýja jakka. Hann er alltaf með augun opin fyrir nýjum yfirhöfnum til að bæta í safnið þó fataskápurinn sé orðinn troðfullur.

„Ég er mikið fyrir jakka. Ég á ágætissafn í skápnum mínum. Ég klæddist til dæmis mjög flottum jakka í myndinni Drive. Þetta var hvítur mittisjakki úr satíni með sporðdreka aftaná,“ segir Ryan um hrifningu sína.

Jólasmellurinn í ár

Poppkrúttið Justin Bieber frumflutti jólalagið „Mistletoe“ á dögunum en aðdáendur hjartaknúsarans hafa beðið eftir útgáfu lagsins með mikilli eftirvæntingu. Hér má heyra jólasmellinn í ár.

 

 

 

 

Fleiri fréttir