Hólmfríður ráðin verkefnisstjóri sóknaráætlana landshluta

Fyrir skömmu síðan auglýsti Byggðastofnun laust til umsóknar starf verkefnisstjóra sóknaráætlana landshluta.  Um er að ræða tímabundið starf til eins árs.  Alls sóttu 43 um starfið en ákveðið var að ráða Hólmfríði Sveinsdóttur stjórnsýslufræðing.

Í Byggkorni, fréttabréfi Byggðastofnunar, kemur fram að verkefni verkefnisstjórans sé þríþætt.
Í fyrsta lagi að vinna með stýrineti stjórnarráðsins að útfærslu og framkvæmd verkefnisins um sóknaráætlanir landshluta.  Það felur m.a. í sér að taka þátt í fundum stýrinets verkefnisins sem í eiga sæti fulltrúar ráðuneyta, að þróa mælikvarða sem sýna framvindu, leggja mat á árangur og þróun verkefnisins, sem og að koma með ábendingar um framkvæmd. Þá fylgist Byggðastofnun með þeim sérstöku verkefnum sem framkvæmd eru undir merkjum sóknaráætlana landshluta og aðstoðar eftir atvikum einstök ráðuneyti við verkefnisstjórn.

Í öðru lagi vinna einstök landshlutasamtök að gerð sóknaráætlana fyrir hvern landshluta, í samvinnu við Byggðastofnun. Áætlanirnar munu leggja markmið Íslands 2020 til grundvallar, auk hugmynda og áherslna sem fyrir liggja eftir þjóðfundi landshluta og stefnumörkun landshlutasamtaka í kjölfar þeirra. Forgangsröðun einstakra verkefna á hverju svæði verði á hendi heimafólks. Skilgreindur verður sameiginlegur vettvangur sveitarstjórna og fulltrúa atvinnulífs og stofnana á hverju svæði sem kemur í stað hinna ýmsu stjórna og nefnda sem koma að málum í núverandi skipulagi.

Í þriðja lagi vinnu Byggðastofnun í samvinnu við stýrinetið að því að samhæfa aðkomu ólíkra stofna ríkisvaldsins að vinnu við sóknaráætlanir landshluta, svo sem Ferðamálastofu, nýsköpunarmiðstöðvar og atvinnuþróunarfélaga.

Þá segir að umsækjendur um starfið hafi alls verið 43, þar af voru 18 boðaðir í viðtöl og 7 í framhaldi af þeim til frekari greiningar.  Sett var á laggirnar sérstök hæfisnefnd til að fjalla um umsóknirnar og taka viðtöl við umsækjendur.  Í henni voru 3 fulltrúar, Snorri Björn Sigurðsson forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar, Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur í Forsætisráðuneytinu og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í Innanríkisráðuneytinu, og formaður stýrinets sóknaráætlana landshluta.

Á grundvelli tillagna nefndarinnar, skoðunar á þeim gögnum sem fyrir henni lágu, viðtölum við meðmælendur ofl., ákvað forstjóri Byggðastofnunar að ráða í starfið Hólmfríði Sveinsdóttur stjórnsýslufræðing.  Hólmfríður hefur nú þegar hafið störf en aðsetur hennar verður í  Arnarhvoli.

Fleiri fréttir