Hönnunar- og prjónasamkeppni Prjónagleðinnar 2021

Um þessar mundir er verið að hleypa af stokkunum hinni árlegu hönnunar- og prjónasamkeppni Prjónagleðinnar á Blönduósi, sem haldin verður 11. – 13. júní 2021. Að þessu sinni gengur samkeppnin út að hanna og prjóna vesti, fyrir barn eða fullorðinn. 

Í tilkynningu frá Textílmiðstöð Íslands segir að þema keppninnar verði áferð í náttúru Íslands og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að vera handprjónuð og úr íslenskri ull. Óskað er eftir því að sagan á bak við hugmynd og hönnun fylgi með þegar vestinu er skilað inn í keppnina.

Dómnefnd velur þrjú efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2021, þar sem verðlaun verða afhent. Vestin sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur. 

Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir svana@textilmidstod.is og þær má einnig finna á heimasíðu Textílsmiðstöðvarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir